Íslenskar lækningajurtir, söfnun þeirra, verkun og notkun

Garðyrkjuámskeið

Lokað fyrir skráningu

  • Staðsetning: Skólabraut
  • Dagsetning: 24. mars 2020
  • Tími: 19:00 - 21:00
  • Verð: 7.500 kr.
  • Bókunartímabil: 22. janúar 2020 - 24. mars 2020
  • Nánar:

    Íslenskar lækningajurtir, söfnun þeirra, verkun og notkun

    1. mars. Fimmtuudagur kl. 19.00 – 21.00. Verð kr. 7.500-

    Á námskeiðinu verður fjallað um algengar íslenskar drykkjar- og lækningajurtir og leiðbeint um söfnun þeirra, verkun og notkun. Stiklað verður á stóru í sögulegu samhengi og áhersla lögð á sjálfbærni og virðingu við náttúruna. Söfnun jurta í fögru umhverfi er ánægjulegt og lærdómsríkt viðfangsefni og kjörið fyrir samhentar fjölskyldur og einstaklinga unga sem aldna. Kynntur verður möguleiki á grasaferð með vönu fólki.

    • Fjallað um tíu algengar íslenskar lækningajurtir sem um aldir hafa verið nytjaðar og taldar viðhalda og efla heilbrigði.
    • Leiðbeiningar varðandi söfnun, verkun og geymslu jurtanna og uppskriftir af hvannasúpu og „heilsueflandi grasaseyði“.
    • Tilsögn í að útbúa jurtate, grasaseyði og hvannasúpu.
    • Innsýn í þróun og sögu grasalækninga og nýjar rannsóknir sem styðja reynslu forfeðranna.
    • Leiðbeiningar um hvernig nytja má íslensk grös án þess að ganga á gjafir jarðarinnar.
    • Leiðbeiningar um hvar megi afla frekari upplýsinga um íslenskar drykkjar- og lækningaplöntur.

    Kennsla:

    Steinn Kárason garðyrkjufræðingur og M.Sc. í umhverfisfræðum.

Lokað fyrir skráningu


Námsflokkar Hafnarfjarðar - Miðstöð símenntunar | Menntasetrið við Lækinn | 220 Hafnarfirði | Sími 585 5860