Heim Um Námsflokkana
Um Nmsflokkana

Námsflokkar Hafnarfjarðar hafa starfað frá árinu 1971 í núverandi mynd. Meginmarkmið Námsflokkanna er að bjóða almenningi tækifæri til að efla grunnmenntun sína og stuðla að aukinni þátttöku fólks í námi og hagnýtri fræðslu. Þá leitast Námsflokkar Hafnarfjarðar við að verða við óskum einstaklinga og hópa um áhugaverð fræðslu- og kynningarnámskeið og veita almenningi ráðleggingar um námsval og námsleiðir að markmiðum, sé eftir því leitað. Ennfremur sinna Námsflokkarnir ýmiss konar sí- og endurmenntun. Námsflokkarnir hafa ávallt lagt áherslu á að efla tengsl við aðra skóla í Hafnarfirði og styðja við það nám sem þar fer fram og æskilegt þykir á hverjum tíma. Starfsnám fyrir ófaglært fólk í atvinnulífinu er ríkur þáttur í starfsemi Námsflokkanna og í samfélagi þar sem sífellt eru gerðar meiri kröfur til hæfni, þekkingar og mentunar verður þáttur starfs- og símenntunar stöðugt mikilvægari í allri starfseminni. Á árinu 2000 var farið í stefnumótunarvinnu með þátttöku fjölda aðila frá stofnunum, fyrirtækjum og félagasamtökum þar sem lögð voru drög að framtíðarsýn og stefnu Námsflokkanna sem MIÐSTÖÐ SÍMENNTUNAR. Þetta var liður í þeirri viðleitni að skerpa framtíðarsýn Námsflokkanna, gera starfsemi þeirra markvissari og aðlaga þannig námsframboð á hverjum tíma sem best að þörfum einstaklinga, atvinnulífs og annarra hagsmunahópa. Mikið starf er óunnið í þessu sambandi og vilja Námsflokkarnir sem miðstöð símenntunar auka samstarf við sem flesta fræðsluaðila, í samræmi við meginmarkmiðið. Þannig vilja Námsflokkarnir leggja af mörkum eins mikið og mögulegt er, á tímum mikilla breytinga í samfélaginu, þegar menntun er eitt af mikilvægustu atriðum í því hvernig til tekst um mótun framtiðar okkar. Á árinu 2006 er 35 ára starfsafmæli Námsflokkanna. Theodór Hallsson, skólastjóri.

 

Helstu svið í starfsemi Námsflokka Hafnarfjarðar:
· Bóklegt og verklegt frístundanám, m.a. fjölbreytt tungumálanám, handverks- og listgreinar.
· Íslenskunám fyrir útlendinga.
· Námsaðstoð fyrir grunn- og framhaldsskólanemendur.
· Norsku- og sænskukennsla fyrir grunnskólanemendur.
· Tölvunám, bókhalds- og rekstrarnám.
· Fluguköst og fluguhnýtingar í samvinnu við Stangveiðifélag Hafnarfjarðar.
· Námskeið í garðhönnun og garðyrkju.
· Tónlist - gítar,hljómborð, saxófónn, harmonikka, trommur, blokkflauta, fiðla og söngnám.
· Sviðslistanám - leiklist, danslist og sönglist.
· Námskeið er varða heilsu, útlit og hreysti m.a. nudd, stafaganga, jóga og förðun
· Námskeið fyrir flokkstjórja Vinnuskólans.
· Prófanám í samvinnu við Flensborgarskóla sem metið er til eininga.
· Starfs- og símenntun fyrir fólk í atvinnulífinu.
· Ýmis námskeið og fræðslufundir sem eru áhugaverð á hverjum tíma.
· Sí- og endurmenntun fyrir kennara leik- og grunnskóla.
· Fjarnám á háskólastigi í samstarfi við Háskólann á Akureyri.

 
< Fyrri

Valmynd

Heim
Fréttir
Um Námsflokkana
INNRITUN

Tenglar

Hafnarfjörður
Gaflarinn
Bókasafn
Byggðasafn

Tilkynningar

innritun í síma

585 5860

NÝ NÁMSKRÁ VORÖNN 2013
Hægt er að nálgast námskrá
vorannar hér sem pdf skjal.



Parenting – what works?
Árný Ingvarsdóttir, psychologist
31. oct – 7. nov,  2 sessions
Monday at 20.00-22.00 NÁNAR

Samræður á Þýsku- umræðuhópur
Christian Schultze
4. okt – 22. okt. NÁNAR

Norsku- og sænskukennsla
upplýsingar um norsku- og sænskukennslu fyrir grunnskólanemendur má einnig finna hér á vefnum

Starfsmenn

Miðstöð símenntunar.
sími: 585-5860
netfang: This e-mail address is being protected from spam bots, you need JavaScript enabled to view it

Theodór Hallsson skólastjóri.
sími: 585-5861
netfang: This e-mail address is being protected from spam bots, you need JavaScript enabled to view it

Finnur  Gunnþórsson aðstoðarforstöðumaður.
Sími: 585-5860
netfang: This e-mail address is being protected from spam bots, you need JavaScript enabled to view it  

Ellert B. Magnússon verkefnastjóri.
sími: 664-5510
netfang: This e-mail address is being protected from spam bots, you need JavaScript enabled to view it