Heim
Kennsla norsku og snsku

Þeir sem geta stundað nám í norsku eða sænsku eru nemendur grunnskóla sem hafa búið í Noregi eða Svíþjóð eða eiga fjölskyldu- og/eða vinatengsl þar og hafa þannig öðlast undirstöðukunnáttu í málunum. Kennslan kemur í staðinn fyrir dönskukennslu í grunnskóla.
Nemandi þarf að hafa eftirtalda undirstöðukunnáttu til að geta stundað nám í norsku eða sænsku:
▪ skilja allvel talaða norsku eða sænsku
▪ geta lesið og skilið einfalda texta á norsku eða sænsku miðað við sinn aldurshóp
▪ geta gert sig skiljanlegan á töluðu máli í norsku eða sænsku
Þessi lágmarkskunnátta er nauðsynleg til þess að nemendur geti nýtt sér þá kennslu sem í boði er á hverjum tíma.
Nemendur sem geta valið norsku eða sænsku, hafa þá sérstöðu að þeir vita deili á þessum samfélögum, þekkja tjáskiptareglur þeirra og siði. Þeir hafa því málfarslegar og menningarlegar rætur bæði á Íslandi og í Noregi eða Svíþjóð.
Norsku- og sænskukennslan er skipulögð af kennurum Námsflokka Hafnarfjarðar - Miðstöðvar símenntunar og fer að öllu jöfnu fram eftir skólatíma í húsnæði Námsflokkanna við Skólabraut (gamla Lækjarskólahúsið). Nemendum er safnað saman úr grunnskólum bæjarins og fá kennslu einu sinni í viku, tvær kennslustundir í senn.
Kennsla í norsku er á þríðjudögum kl. 15.50-17.10 í stofu 216 Setbergsskóla.
Kennsla í sænsku er á miðvikudögum kl. 15.30-16.50 fyrir 7. og 8. bekk og kl. 17.00-18.20 fyrir 9. og 10. bekk í Menntasetrinu við lækinn.

Nemendur í 10. bekk taka samræmt próf í norsku og sænsku. Um þetta má sjá nánari upplýsingar hjá Námsmatsstofnun. http://www.namsmat.is/
Kennari í norsku er Arnhild Mölnvik, farsími: 899-0405. Netfang er This e-mail address is being protected from spam bots, you need JavaScript enabled to view it
Kennari í sænsku er Solveig Lilja Óladóttir, hs: 517-2914, farsími 822-2914. Netfang This e-mail address is being protected from spam bots, you need JavaScript enabled to view it
Allar nánari upplýsingar veittar af kennurum í norsku og sænsku eða á skrifstofu

Námsflokka Hafnarfjarðar -Miðstöðvar símenntunar við Skólabraut, sími 585 - 5860.

 
< Fyrri   Nsta >

Tenglar

Hafnarfjrur
Gaflarinn
Bkasafni
Byggasafni

Tilkynningar

innritun í síma

585 5860

NÝ NÁMSKRÁ HAUSTÖNN 2011
Hægt er að nálgast námskrá
haustannar 2011 hér sem pdf skjal.



Parenting – what works?
Árný Ingvarsdóttir, psychologist
31. oct – 7. nov,  2 sessions
Monday at 20.00-22.00 NÁNAR

Samræður á Þýsku- umræðuhópur
Christian Schultze
4. okt – 22. okt. NÁNAR

Norsku- og sænskukennsla
upplýsingar um norsku- og sænskukennslu fyrir grunnskólanemendur má einnig finna hér á vefnum

Starfsmenn

Miðstöð símenntunar.
sími: 585-5860
netfang: This e-mail address is being protected from spam bots, you need JavaScript enabled to view it

Theodór Hallsson skólastjóri.
sími: 585-5861
netfang: This e-mail address is being protected from spam bots, you need JavaScript enabled to view it

Finnur  Gunnþórsson aðstoðarforstöðumaður.
Sími: 585-5860
netfang: This e-mail address is being protected from spam bots, you need JavaScript enabled to view it  

Ellert B. Magnússon verkefnastjóri.
sími: 664-5510
netfang: This e-mail address is being protected from spam bots, you need JavaScript enabled to view it