|
Þeir sem geta stundað nám í norsku eða sænsku eru nemendur grunnskóla sem hafa búið í Noregi eða Svíþjóð eða eiga fjölskyldu- og/eða vinatengsl þar og hafa þannig öðlast undirstöðukunnáttu í málunum. Kennslan kemur í staðinn fyrir dönskukennslu í grunnskóla. Nemandi þarf að hafa eftirtalda undirstöðukunnáttu til að geta stundað nám í norsku eða sænsku: ▪ skilja allvel talaða norsku eða sænsku ▪ geta lesið og skilið einfalda texta á norsku eða sænsku miðað við sinn aldurshóp ▪ geta gert sig skiljanlegan á töluðu máli í norsku eða sænsku Þessi lágmarkskunnátta er nauðsynleg til þess að nemendur geti nýtt sér þá kennslu sem í boði er á hverjum tíma. Nemendur sem geta valið norsku eða sænsku, hafa þá sérstöðu að þeir vita deili á þessum samfélögum, þekkja tjáskiptareglur þeirra og siði. Þeir hafa því málfarslegar og menningarlegar rætur bæði á Íslandi og í Noregi eða Svíþjóð. Norsku- og sænskukennslan er skipulögð af kennurum Námsflokka Hafnarfjarðar - Miðstöðvar símenntunar og fer að öllu jöfnu fram eftir skólatíma í húsnæði Námsflokkanna við Skólabraut (gamla Lækjarskólahúsið). Nemendum er safnað saman úr grunnskólum bæjarins og fá kennslu einu sinni í viku, tvær kennslustundir í senn. Kennsla í norsku er á þríðjudögum kl. 15.50-17.10 í stofu 216 Setbergsskóla. Kennsla í sænsku er á miðvikudögum kl. 15.30-16.50 fyrir 7. og 8. bekk og kl. 17.00-18.20 fyrir 9. og 10. bekk í Menntasetrinu við lækinn.
Nemendur í 10. bekk taka samræmt próf í norsku og sænsku. Um þetta má sjá nánari upplýsingar hjá Námsmatsstofnun. http://www.namsmat.is/ Kennari í norsku er Arnhild Mölnvik, farsími: 899-0405. Netfang er
This e-mail address is being protected from spam bots, you need JavaScript enabled to view it
Kennari í sænsku er Solveig Lilja Óladóttir, hs: 517-2914, farsími 822-2914. Netfang
This e-mail address is being protected from spam bots, you need JavaScript enabled to view it
Allar nánari upplýsingar veittar af kennurum í norsku og sænsku eða á skrifstofu Námsflokka Hafnarfjarðar -Miðstöðvar símenntunar við Skólabraut, sími 585 - 5860.
|