Heim Frttir
Frttir

Fjarnám í iðjuþjálfun haust 2008

Fjarnám í iðjuþjálfun haust 2008 Fjarnám í iðjuþjálfunarfræðum haustið 2008 Heilbrigðisdeild Háskólans á Akureyri stefnir á að hefja fjarnám í iðjuþjálfunarfræðum haustið 2008. Þessi hugmynd er í samræmi við þá stefnu háskólans að auðvelda aðgengi allra landsmanna að háskólanámi um leið og komið er til móts við sívaxandi eftirspurn eftir iðjuþjálfum. HA er eina menntastofnunin í landinu sem býður upp á nám í iðjuþjálfunarfræðum. Iðjuþjálfar brautskráðir frá HA hafa reynst eftirsóttir starfskraftar og síðan iðjuþjálfunarbrautin tók til starfa haustið 1997 hefur eftirspurn eftir iðjuþjálfum aukist verulega um allt land. Reynslan hefur sýnt að HA tekst ekki að mæta þörf samfélagsins fyrir þjónustu iðjuþjálfa með staðarnámi eingöngu. Reiknað er með að fjarnámið fari fram samhliða staðarnáminu og að fjarnemendur mæti í stuttar kennslulotur í HA með staðarnemum einu sinni til tvisvar á önn. Þess á milli stunda fjarnemendur nám sitt alfarið í gegnum netið. Staðarnámið verður áfram með hefðbundnum hætti. Þeir sem hafa áhuga á frekari upplýsingum um fjarnámið eru hvattir til að hafa samband við Guðrúnu Pálmadóttur, brautarstjóra iðjuþjálfunarbrautar ( This e-mail address is being protected from spam bots, you need JavaScript enabled to view it ) eða Láru Garðarsdóttur skrifstofustjóra heilbrigðisdeildar ( This e-mail address is being protected from spam bots, you need JavaScript enabled to view it ).

 



 

Fjarnám á háskólastigi á höfuðborgarsvæðinu.

Fjarnám á háskólastigi á höfuðborgarsvæðinu.
Háskólinn á Akureyri býður upp á fjarnám á höfðuborgarsvæðinu í samstarfi við Miðstöð símenntunar í Hafnarfirði. Fjarnámið fer fram í gegnum vefinn og með myndfundum, auk þess sem aðrir samskiptamiðlar eru nýttir til hins ítrasta.
Námsframboð:
Grunnskólakennarafræði
Leikskólakennarafræði
Auðlindadeild með áherslu á:
líftækni, sjávarútvegs- og fiskeldisfræði, umhverfis- og orkukfræði.
Viðskiptafræði með áherslu á:
ferðaþjónustu, fjármál, markaðsfræði, stjórnun.
Sjá nánar www.unak.is

 



 

LEIKLISTARNÁMSKEIÐ - UNDIRBÚNINGUR FYRIR INNTÖKUPRÓF Í LISTAHÁSKÓLA

LEIKLISTARNÁMSKEIÐ - UNDIRBÚNINGUR FYRIR INNTÖKUPRÓF Í LISTAHÁSKÓLA
Undirbúningur fyrir inntökupróf í listaháskóla verður nú á vorönn 2007 öðru sinni í boði hjá Miðstöð símenntunar í Hafnarfirði. Námskeiðið er sérsniðið fyrir fólk sem ætlar að þreyta inntökupróf í listaháskóla hérlendis eða erlendis. Á námskeiðinu verður m.a. lögð áhersla á að nemendur læri dans-og söngrútínu til að sýna í inntökuprófi ásamt spuna, leikrænni tjáningu og texta auk þess sem nemendum verður leiðbeint með val á texta eða svokölluðum mónólógum(einræðum) til flutnings í viðkomandi inntökuprófi. Sérstök áhersla verður lögð á spuna á námskeiðinu. Umsjón með námskeiðinu er í höndum Margrétar Ákadóttur leikara og leiklistarmeðferðarfræðings. Allar nánari upplýsingar hjá Margréti í síma 690-1939 og hjá Miðstöð símenntunar í síma 585-5860.

 



 

Fréttatilkynning

Háskólinn á Akureyri og Hafnarfjarðarbær og Námsflokkar Hafnarfjarðar-Miðstöð símenntunar gerðu með sér samstarfssamning um fjarnám árið 2002.
Með þessum samningi á að tryggja íbúum höfuðborgarsvæðisins aðgengi að fjarnámi á háskólastigi frá Háskólanum á Akureyri.
Háskólinn skipuleggur námið og ber á því faglega ábyrgð, leggur til námsefni og annast alla kennslu.
Námsflokkar Hafnarfjarðar-Miðstöð símenntunar leggja til og kosta náms- og starfsaðstöðu fyrir nemendur í Hafnarfirði, miðla upplýsingum og gögnum til þeirra og annast tæknilega umsjón og prófahald. Athygli skal vakin á því að vegna þessarar þjónustu við nemendur kemur til sérstök gjaldtaka.
Samningsaðilar standa sameiginlega að allri kynningu á námsframboði Háskólans á Akureyri í fjarnámi á höfuðborgasvæðinu.
Skólaárið 2007-2008 er starfrækt nám í kennaradeild (leikskólafræði) til B.Ed.gráðu, í auðlindadeild (fiskeldi, líftækni, sjávarútvegsfræði og umhverfisfræði) og í rekstrar- og viðskiptadeild (ferðaþjónusta, fjármál, markaðsfræði og stjórnun) sem hvort tveggja er þriggja ára BS- nám. Einnig er starfrækt sérskipulagt nám í stjórnun og rekstri fyrir talsmenn verkalýðshreyfingarinnar.
Þá munu samningsaðilar halda áfram að kanna möguleika á frekara fjarnnámi frá Háskólanum á Akureyri á höfuðborgarsvæðinu. Sjá nánar um fjarnám á www. unak.is
 

 



 
 

Samstarf um fræðslu

Lúrir þú á fræðsluhugmynd eða stundar þú fræðslustarf?
Námsflokkar Hafnarfjarðar - miðstöð símenntunar, óska eftir samstarfi við alla þá sem vilja koma hugmyndum sínum og fræðslustarfi á framfæri í Hafnarfirði. Höfðum jafnt til einstaklinga og fræðslustofnana sem lúra á hugmyndum og eða vilja útvíkka núverandi starfsemi. Samstarfið getur m.a. falist í kennsluaðstöðu og þjónustu sem henni tengist sem Námsflokkarnir hafa upp á að bjóða og margvíslegri kynningu og markaðssetningu á því samstarfi og fræðslustarfi sem í boði yrði.
Hikið ekki við að hafa samband og ræða málin.

 



 

Þýska - aðstoð fyrir framhaldsskólanemendur

Nemendum framhaldsskóla stendur til boða aðstoð í þýsku á vorönn 2007. Tímar skv. nánara samkomulagi við kennarann, Maríu Eiríksdóttur, sem jafnframt veitir allar nánari upplýsingar í síma 555-2504.

 



 

Námskeið í samstarfi við Félag eldri borgara í Hafnarfirði

Samstarf við Félag eldri borgara um námskeiðahald. Námskeiðin eru kynnt hverju sinni í Hraunseli, félagsheimili eldri borgara í Hafnarfirði.
 
 

 
< Fyrri   Nsta >

Tenglar

Hafnarfjrur
Gaflarinn
Bkasafni
Byggasafni

Tilkynningar

innritun í síma

585 5860

 

Ný námskrá VORÖNN 2010 

Hægt er að nálgast námskrá 
vorannar 2010 hér sem PDF skjal. 

Norsku- og sænskukennsla
upplýsingar um norsku- og sænskukennslu fyrir grunnskólanemendur má einnig finna hér á vefnum

 

Starfsmenn

Miðstöð símenntunar.
sími: 585-5860
netfang: This e-mail address is being protected from spam bots, you need JavaScript enabled to view it

Theodór Hallsson skólastjóri.
sími: 585-5861
netfang: This e-mail address is being protected from spam bots, you need JavaScript enabled to view it

Finnur  Gunnþórsson aðstoðarforstöðumaður.
Sími: 585-5860
netfang: This e-mail address is being protected from spam bots, you need JavaScript enabled to view it  

Ellert B. Magnússon verkefnastjóri.
sími: 664-5510
netfang: This e-mail address is being protected from spam bots, you need JavaScript enabled to view it