|
Námsflokkar Hafnarfjarðar á tímamótum Markmið Námsflokkanna allt frá stofnun þeirra hefur verið að gefa almenningi tækifæri til að efla grunnmenntun sína og stuðla að aukinni þátttöku fólks í námi og hagnýtri fræðslu. Einnig hefur verið lögð rík áhersla á að efla tengsl við aðra skóla í Hafnarfirði, styðja við það nám sem þar fer fram og æskilegt hefur þótt á hverjum tíma, jafnframt því sem ávallt hefur verið leitast við að verða við óskum einstaklinga og hópa um áhugaverð fræðslu- og kynningarnámskeið. Starfsnám hefur verið ríkur þáttur í starfsemi Námsflokkanna og í samfélagi þar sem sífellt eru gerðar meiri kröfur til hæfni, þekkingar og menntunar verður þáttur starfs- og símenntunar stöðugt mikilvægari í allri starfseminni. Á árinu 2000 var farið í stefnumótunarvinnu með þátttöku fjölda aðila frá stofnunum, fyrirtækjum og félagasamtökum þar sem lögð voru drög að framtíðarsýn og stefnu Námsflokkanna sem MIÐSTÖÐ SÍMENNTUNAR. Þetta er liður í þeirri viðleitni að skerpa framtíðarsýn Námsflokkanna, gera starfsemi þeirra markvissari og aðlaga þannig námsframboð á hverjum tíma sem best að þörfum einstaklinga, atvinnulífs og annarra hagsmunahópa. Þó að margt hafi áunnist í þessu sambandi er mikið starf óunnið og vilja Námsflokkarnir sem miðstöð símenntunar auka samstarf við sem flesta fræðsluaðila, í samræmi við meginmarkmiðið. Þannig vilja Námsflokkarnir leggja af mörkum eins mikið og mögulegt er, á tímum mikilla breytinga í samfélaginu, þegar menntun er eitt af mikilvægustu atriðum í því hvernig til tekst um mótun framtíðar okkar. Á haustödögum 2002 opnaðist íbúum á höfuðborgarsvæðinu nýr möguleiki til náms i Námsflokkum Hafnarfjarðar þegar fjarnám í samstarfi við Háskólann á Akureyri hófst.
Theodór Hallsson, skólastjóri.
|