Dagforeldra-námskeið
Námsflokkar Hafnarfjarðar standa fyrir starfsréttindanámskeiðum fyrir verðandi dagforeldra samkvæmt gildandi reglugerð um daggæslu barna í heimahúsum.
Áformað er að nýtt námskeið hefjist haustönn 2021 ef næg þátttaka næst. Nánari upplýsingar veitir Sigrún Ósk Bjarnadóttir, netfang: sigrunosk@hafnarfjordur.is og í síma 892-2092.
Markmiðið með námskeiðinu er að veita hnitmiðaða og vel uppbyggða fræðslu um m.a. uppeldi og umönnun barna, þarfir þeirra og þroska, barnasjúkdóma, slys í heimahúsum og fyrstu hjálp, eldvarnir og öryggi barna.
Skráning fer fram hjá dagvistunarfulltrúum sveitarfélaga.